Ársfundur Ölfus Cluster markar áframhaldandi uppbyggingu
Ársfundur Ölfus Cluster var haldinn í Versölum í Þorlákshöfn þar sem farið var yfir starfsemi síðasta árs, helstu verkefni fram undan og kjörin ný stjórn fyrir komandi starfsár. Fundurinn staðfesti áframhaldandi uppbyggingu Ölfus Cluster og mikilvægt hlutverk hans í atvinnu- og samfélagsþróun í Ölfusi.
Fjölbreytt verkefni á sviði atvinnuþróunar
Í skýrslu stjórnar var farið yfir fjölmörg verkefni sem unnin hafa verið á vettvangi Ölfus Cluster. Þar ber hæst verkefni tengd atvinnuuppbyggingu, nýsköpun og sjálfbærri auðlindanýtingu, auk þróunar grænna Iðngarða, verkefna á sviði vatnsauðlinda og vaxandi samstarfs við fyrirtæki, háskóla og rannsóknastofnanir. Einnig var fjallað um áframhaldandi uppbyggingu í landeldi, matvælaframleiðslu og ferðaþjónustu í sveitarfélaginu.
Áhersla á áframhaldandi sókn
Fram kom á fundinum að áfram verði lögð áhersla á verkefni sem styðja við sjálfbæra atvinnuuppbyggingu í Ölfusi. Meðal áherslumála næsta starfsárs eru þróun grænna iðngarða og hringrásarverkefna, verkefni tengd vatnsvöktun, samstarf við Lagarlíf (Aqua-Ice), efling ferðaþjónustu og áframhaldandi þróun innviða sem styðja við vaxandi atvinnulíf á svæðinu.
Stjórn Ölfus Cluster kjörin
Á fundinum var kjörin stjórn Ölfus Cluster fyrir komandi starfsár. Í stjórn sitja Elliði Vignisson, sveitarstjóri Ölfuss, Helga Kristín Jóhannsdóttir, viðskiptaþróunarstjóri hjá ON, Haukur Þór Haraldsson, viðskiptastjóri hjá Verkís, Svava Rán Karlsdóttir, mannauðsstjóri hjá Icelandic Water Holdings, og Grétar Ingi Erlendsson, markaðsstjóri hjá Black Beach Tours og formaður bæjarráðs Ölfuss. Varamenn í stjórn eru Ingimar Rafn Ágústsson frá VAXA Technologies og Gulla Aradóttir, framkvæmdastjóri Lýsis í Þorlákshöfn og forstjóri Ice Fish Iceland.
Þetta endurspeglar vel þann fjölbreytta bakgrunn og þá þekkingu sem stjórn Ölfus Cluster byggir á, með fulltrúum úr atvinnulífi, sveitarfélagi, nýsköpun, verkfræði, orkumálum og matvælaframleiðslu.
Sterkari vettvangur fyrir atvinnulíf og samfélag
Ölfus Cluster hefur á undanförnum árum orðið mikilvægur vettvangur fyrir samstarf atvinnulífs, sveitarfélagsins og annarra hagaðila. Ársfundurinn endurspeglaði þann kraft sem er til staðar í verkefnum Ölfus Cluster og þann metnað að halda áfram að skapa tækifæri til nýsköpunar, samstarfs og verðmætasköpunar í Ölfusi.