Starfsfólk og stjórn
Ölfus Cluster hefur á að skipa einvala hópi fólks með mikla reynslu úr atvinnulífinu, opinberri stjórnsýslu og rannsókna- og fræðastarfi.
Starfsfólk ÖC
Hér er framlína Ölfus Cluster og er þér velkomið kynna þér störf okkar hér á síðunni en þér er einnig velkomið að vera í sambandi við okkur til þess að fræðast frekar um starfsemi Ölfus Cluster.

Páll Marvin Jónsson
Framkvæmdastjóri
Páll hefur víðamikla reynslu í stjórnun verkefna og í að draga saman þekkingu og færni ólíkra aðila til að vinna að lausnum og nýsköpun.
Stjórnin okkar
Stjórn er kjörin á ársfundi ÖC og kemur hún úr hópi stofnfélaga eða með tilnefningu frá stofnaðilum.
Hópurinn hefur þá sameiginlegu sýn hjá Ölfus Cluster að efla og styðja við atvinnulífið á svæðinu með hugmyndafræði hins græna og bláa hagkerfis að leiðarljósi.
Elliði Vignisson
Bæjarstjóri Ölfus
Elliði er stjórnarformaður ÖC, hann er sálfræðingur að mennt og fyrrum bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
Grétar Ingi Erlendsson
Verkefnastjóri
Grétar starfar sem verkefnastjóri í ferðaþjónustu og er jafnframt formaður Bæjarráðs Ölfus. Hann er einnig fyrrum snillingur í körfubolta.
Haukur Þór Haraldsson
Viðskiptaþróunarstjóri
Haukur Þór stundaði nám í líffræði og viðskiptafræði og starfar nú sem Viðskiptaþróunarsjóri hjá Verkís.
Helga Kristín Jóhannsdóttir
Viðskiptaþróunarstjóri hjá Orku náttúrunnar
Helga hefur starfað bæði á sviði opinberrar stefnumótunar og innan framsækinna orkufyrirtækja og hefur verið virk í að móta framtíðarsýn um sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda. Með þátttöku sinni í Ölfus Cluster leggur hún áherslu á tengingu við nýsköpun, kolefnishlutleysi og ábyrga auðlindanýtingu í þágu samfélagsins.
Svava Rán Karlsdóttir
Mannauðsstjóri IWH
Svava Rán starfar sem mannauðsstjóri hjá Icelandic Glacial í Ölfusi. Á rúmlega 25 ára ferli hefur hún komið víða við, en rauði þráðurinn hefur ávallt verið fræðslu- og mannauðsmál, bæði á Íslandi og í Bretlandi. Þessi víðtæka og alþjóðlega reynsla mun nýtast vel í áframhaldandi uppbyggingu Ölfus Cluster.
Ingimar Rafn Ágústsson
Framleiðslustjóri hjá VAXA Technologies
Ingimar Rafn er framleiðslustjóri hjá VAXA Technologies í Þorlákshöfn. Hann er menntaður vélvirkjameistari og hefur starfað hjá fyrirtækinu frá árinu 2019. Árið 2022 leiddi hann uppbyggingu vinnslu VAXA í Þorlákshöfn og hefur síðan komið að þróun og daglegri stjórnun framleiðslu með áherslu á fagmennsku, gæði og öflugt teymisstarf. Með þátttöku sinni í Ölfus Cluster leggur hann áherslu á nýsköpun, verðmætasköpun og áframhaldandi uppbyggingu atvinnulífs í Ölfusi.
Gulla Aradóttir
Stofnandi og framkvæmdastjóri Ice Fish og framkvæmdastjóri Lýsis í Þorlákshöfn
Gulla hefur víðtæka reynslu af sjávarútvegi, framleiðslu, rekstri og viðskiptaþróun með sérstaka áherslu á verðmætasköpun úr sjávarauðlindum. Hún er stofnandi og framkvæmdastjóri Ice Fish og er jafnframt framkvæmdastjóri Lýsis í Þorlákshöfn. Gulla er með B.Sc.-gráðu í Sport Science & Physical Education og stundar nú Executive MBA-nám við Háskólann í Reykjavík. Með reynslu sinni færir Gulla Ölfus Cluster sterka tengingu við staðbundinn iðnað, rekstur og sjálfbæra nýtingu sjávarauðlinda.
