Verið vinnustofa í Ölfus
Sveigjanleg náms - og vinnuaðstaða
Hvað er Verið vinnustofa ?
Ölfus Cluster rekur Verið vinnustofu með það að markmiði að styðja við nám, nýsköpun og atvinnustarfsemi í sveitarfélaginu. Þar er boðið upp á sveigjanlega vinnuaðstöðu fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Verið vinnustofa
Verið býður upp á sveigjanlega vinnu- og námsaðstöðu fyrir nemendur, einstaklinga í fjarvinnu, frumkvöðla og fyrirtæki.
Aðgangur fyrir eina önn - 12.000 kr.
Hentar nemendum sem vilja nýta Verið reglulega yfir önnina til náms, verkefnavinnu eða próftöku.
Innifalið:
- Skrifborð og vinnuaðstaða
- Skjár, mús og lyklaborð
- Wi-Fi tenging
- Kaffi- og mataraðstaða
- Öll próf innifalin
- Aðgangskort að Verinu
Prófaaðstaða - 6.000 kr. á próf
Fyrir nemendur sem þurfa eingöngu aðstöðu vegna próftöku.
Innifalið:
- Rólegt vinnuumhverfi
- Wi-Fi og vinnuaðstaða
- Aðgangur á meðan prófi stendur
Fast vinnuborð - 35.000 kr. á mánuði
Fyrir fyrirtæki, einyrkja og aðra sem vilja hafa fasta vinnuaðstöðu í Verinu.
Innifalið:
- Eigið vinnuborð til afnota
- Skjár, mús og lyklaborð
- Wi-Fi tenging
- Aðgangur að fundaraðstöðu
- Kaffi- og mataraðstaða
- Aðgangskort að Verinu
Aðgangskort
Eftir skráningu og greiðslu fær viðkomandi afhent aðgangskort að Verinu.

Fyrir Nemendur
Kjörin aðstaða fyrir nám, próftöku og verkefnavinnu.

Fyrir Frumkvöðla
Sveigjanlegt vinnurými fyrir hugmyndir og uppbyggingu.

Fyrir Fyrirtæki
Aðstaða fyrir fyrirtæki sem þurfa sveigjanlegt vinnurými fyrir starfsmenn eða teymi.

Fyrir Óstaðbundin Störf
Óstaðbundin störf í Verinu – tækifæri fyrir ríkisstofnanir.
Aðstaða sem styður vöxt og þróun
Sveigjanleg lausn með stuðningi
Verið er vettvangur fyrir nám, nýsköpun og atvinnuuppbyggingu. Starfsfólk Ölfus Cluster er til staðar til að aðstoða við þróun hugmynda, styrkumsóknir og tengslamyndun – samhliða því að bjóða upp á faglega og sveigjanlega vinnuaðstöðu.
- Hraðvirk og stöðug nettenging
- Fundarherbergi
- Þægileg skrifborð
- MudeBox vinnuklefar
- Kaffi & aðstaða
Algengar spurningar
Verið vinnustofa er opin háskólanemum, frumkvöðlum, fyrirtækjum og einstaklingum í fjarvinnu. Aðstaðan er í boði svo lengi sem laus pláss eru hverju sinni.
Aðstaðan felur í sér vel búin vinnurými, hraðvirka nettengingu, fundarherbergi og einangraða vinnuklefa (MudeBox). Markmiðið er að skapa faglegt og rólegt vinnuumhverfi sem styður við einbeitingu og afköst.
Já. Í boði eru einangruð vinnurými sem henta vel fyrir próftöku, fjarfundi og verkefnavinnu þar sem þörf er á næði.
Nemendur frá Háskólanum á Akureyri, Landbúnaðarháskóla Íslands og Háskólanum á Bifröst geta tekið próf í Verinu samkvæmt samkomulagi.
Ef nemendur frá öðrum háskólum eða menntastofnunum óska eftir að taka próf í Verinu leitast Ölfus Cluster við að verða við því og hefur samband við viðkomandi skóla til að kanna möguleika á samstarfi.
Já. Verið hentar vel fyrir einstaklinga sem starfa í fjarvinnu og þurfa faglegt vinnuumhverfi utan heimilis. Aðstaðan styður við daglega vinnu og fjarfundi.
Já. Fyrirtæki geta leigt eitt eða fleiri skrifborð til skemmri eða lengri tíma, svo lengi sem laus aðstaða er fyrir hendi. Samningar eru sveigjanlegir og miðast við þarfir hvers fyrirtækis.
Já. Fundarherbergi með skjá og tengimöguleikum er í boði og hægt er að bóka það eftir þörfum og framboði.
Hægt er að senda fyrirspurn í gegnum heimasíðuna eða hafa beint samband við Ölfus Cluster. Starfsfólk veitir nánari upplýsingar um framboð og aðstoðar við bókun.
Já. Í boði eru bæði dagspassar og lengri leigutími, að því gefnu að laus pláss séu til staðar. Leigutími er ákveðinn í samráði við umsjónaraðila.
Opnunartími og aðgengi eru ákveðin í samráði við notendur. Nánari upplýsingar eru veittar við bókun.
Já. Ölfus Cluster rekur Verið og styður við atvinnuþróun á svæðinu. Starfsfólk getur veitt upplýsingar um tengslanet, styrkjamöguleika og aðra stuðningsþætti eftir þörfum.