Ölfus og Skaftárhreppur taka höndum saman um Dag vatnsins 2027

Ráðstefnan Dagur vatnsins 2027 – Auðlind til framtíðar verður haldin í Þorlákshöfn 22. mars 2027, á alþjóðadegi vatnsins. Áhersla verður á rannsóknir, vernd og sjálfbæra nýtingu vatnsauðlindarinnar og mikilvægi hennar fyrir samfélag og atvinnulíf.

Sveitarfélagið Ölfus, Skaftárhreppur og HYDROS Ölfus standa saman að ráðstefnunni en Ölfus Cluster annast verkefnisstjórn og framkvæmd.

Vatn er ein mikilvægasta auðlind Suðurlands og undirstaða fjölbreyttrar atvinnustarfsemi og samfélagsþróunar. Með samstarfinu vilja sveitarfélögin efla þekkingu á vatnsauðlindinni og skapa vettvang þar sem rannsakendur, fyrirtæki, stofnanir og stjórnvöld geta miðlað reynslu og rætt tækifæri og áskoranir sem tengjast nýtingu hennar og vernd til framtíðar.

Rannsóknir, nýsköpun og atvinnulíf mætast

Á ráðstefnunni verður fjallað um vatnsauðlindina frá ólíkum sjónarhornum, meðal annars grunnvatnsrannsóknir, vatnsgæði, vöktun, nýsköpun og ábyrga auðlindanýtingu.

Samhliða erindum verður rannsóknartorg þar sem nemendur, rannsakendur, stofnanir og fyrirtæki geta kynnt verkefni sín, miðlað þekkingu og myndað ný tengsl.

Kallað eftir hugmyndum og þátttakendum

Undirbúningur ráðstefnunnar er hafinn og óskað er eftir hugmyndum að erindum, rannsóknarverkefnum og áhugaverðum fyrirlesurum. Verkefni á öllum stigum eru velkomin, einnig frá öðrum landshlutum.

Áhugasamir eru hvattir til að senda stutta lýsingu á hugmynd eða verkefni fyrir 15. desember 2026.

Nánari upplýsingar veita Eva Lind Guðmundsdóttir og Páll Marvin Jónsson hjá Ölfus Cluster. Dagskrá og skráning verða kynnt síða