Jákvæðar vísbendingar um jarðhita á Tenerife
Íslensk þekking á jarðhita gæti átt þátt í að opna nýjan kafla í orkuframleiðslu á Kanaríeyjum. Reykjavík Geothermal og samstarfsaðilar hafa lokið borun fyrstu rannsóknarholunnar af þremur á Tenerife og gefa fyrstu niðurstöður jákvæðar vísbendingar um möguleika til nýtingar jarðhita.
Rannsóknarholan er rúmlega 3.000 metra djúp og hafa fyrstu mælingar sýnt jákvæð merki varðandi hita, þrýsting og lekt í jarðlögum. Samkvæmt umfjöllun Morgunblaðsins fannst þegar á um 1.600 metra dýpi vatn sem var heitara en 150°C og mældist vatnsþrýstingur yfir 30 börum.
Magnús Dagur Ásbjörnsson er forstjóri Reykjavík Geothermal. Ljósmynd/Reykjavik Geothermal
Hér má sjá borsvæði félagsins á Tenerife. Ljósmynd/Reykjavik Geothermal
Verkefnið enn á rannsóknarstigi
Verkefnið er þó enn á rannsóknarstigi. Alls verða boraðar þrjár rannsóknarholur og langtímaprófanir þurfa að fara fram áður en hægt verður að staðfesta hvort forsendur séu fyrir jarðhitanýtingu.
Takist verkefnið gæti jarðhiti orðið nýr, staðbundinn og endurnýjanlegur orkugjafi á Tenerife. Í dag er stór hluti raforku á Kanaríeyjum framleiddur með innfluttu jarðefnaeldsneyti og því gæti nýting jarðhita haft bæði umhverfisleg og efnahagsleg áhrif.
Jarðhitarannsóknir einnig í Ölfusi
Verkefnið sýnir jafnframt hvernig íslensk sérþekking á rannsóknum, þróun og nýtingu jarðhita getur skapað tækifæri langt út fyrir landsteinana. Reykjavík Geothermal hefur komið að þróun jarðhitaverkefna í yfir 50 löndum og verkefnið á Tenerife byggir á margra ára undirbúningi og rannsóknum.
Reykjavík Geothermal er einn af stofnaðilum Ölfus Cluster og tengist jafnframt jarðhitarannsóknum í Ölfusi. Félagið vinnur meðal annars að rannsóknum á jarðhita við Bolaöldu, þar sem verið er að kanna möguleika svæðisins til framtíðarnýtingar.