Mikil uppbygging hjá Thor Salmon í Þorlákshöfn

Mikil uppbygging hefur átt sér stað hjá landeldisfyrirtækinu Thor Salmon síðustu vikur en félagið hefur bæði tekið þátt í alþjóðlegri ráðstefnu í Bergen, styrkt stjórn félagsins með reynslumiklum stjórnarmönnum og afhent fyrstu seiðin frá seiðaeldisstöð sinni í Þorlákshöfn.

Kynntu starfsemina á NASF 2026 í Bergen

Thor Salmon tók nýverið þátt í NASF 2026 ráðstefnunni í Bergen í Noregi þar sem félagið kynnti starfsemi sína og uppbyggingaráform fyrir alþjóðlegum aðilum í laxeldi og sjávarútvegi.

Á ráðstefnunni lagði félagið áherslu á framþróun verkefnisins í Þorlákshöfn, sjálfbæra nálgun í landeldi og framtíðarsýn sína um umfangsmikla framleiðslu á laxi á landi hér á Íslandi. Þátttakan vakti athygli meðal fjárfesta, tæknifyrirtækja og annarra hagaðila í greininni.

Reynslumiklir frumkvöðlar í stjórn félagsins

Thor Salmon greindi jafnframt frá því að tveir reynslumiklir frumkvöðlar hefðu gengið til liðs við stjórn félagsins. Með því styrkir félagið enn frekar stjórnunar- og rekstrarlega uppbyggingu sína á mikilvægum vaxtatíma.

Nýju stjórnarmennirnir búa yfir víðtækri reynslu úr atvinnulífi, fjárfestingum og uppbyggingu fyrirtækja og er ráðning þeirra talin mikilvægt skref í áframhaldandi þróun félagsins.

Tölvugerð mynd sem sýnir fyrirhugað framtíðarútlit starfsstöðvar Thor í Þorlákshöfn.

Flutningur fyrstu seiðanna markar mikilvægan áfanga í uppbyggingu Thor Salmon.

Fyrstu seiðin afhent frá Þorlákshöfn

Í byrjun vikunnar afhenti Thor Salmon fyrstu seiðin frá seiðaeldisstöð sinni í Þorlákshöfn. Afhendingin gekk vel og voru rúmlega 330 þúsund seiði, um 100 grömm að þyngd hvert, flutt til kaupandans Kaldvíkur.

Seiðaeldisstöðin er nú komin í fullan rekstur og ástand fiskanna sagt mjög gott. Á næstu misserum verður afhent vel yfir ein milljón seiða til viðskiptavina félagsins, auk þess sem hluti framleiðslunnar verður nýttur í áframeldi á vegum Thor Salmon síðar á árinu.

Steinþór Pálsson, framkvæmdastjóri Thor Salmon, segir það stóran áfanga fyrir félagið að afhenda fyrstu seiðin frá stöðinni í Þorlákshöfn og að með því sé staðfest að uppbyggingaráætlanir og vaxtastefna félagsins gangi eftir samkvæmt áætlun.

Uppbygging áframeldis í fullum gangi

Framkvæmdir við fyrsta áfanga áframeldis félagsins standa nú yfir. Sá áfangi verður með árlega framleiðslugetu upp á 5.000 tonn og hefur þegar verið tryggt fullt fjármagn til verkefnisins.

Í þessum fyrsta áfanga verða reist fjórtán eldisker með samanlagt rúmmál upp á um 52 þúsund rúmmetra og stefnt er að því að fyrstu kerin verði tekin í notkun í haust.

Uppbygging félagsins verður áfangaskipt og verður hver stækkun fjármögnuð áður en ráðist verður í næsta áfanga. Samkvæmt núverandi áætlunum gæti ársframleiðsla Thor Salmon síðar farið yfir 40 þúsund tonn.