Ný reiknivél fyrir byggingartengd gjöld á vef Ölfus Cluster
Ölfus Cluster hefur birt reiknivél sem auðveldar einstaklingum og fyrirtækjum að áætla byggingartengd gjöld í Ölfusi. Reiknivélin byggir á gjaldskrá sveitarfélagsins fyrir skipulags-, byggingar- og umhverfissvið og nær meðal annars til gatnagerðargjalda, vatnsgjalda, holræsagjalda og byggingarleyfisgjalda.
Yfirsýn yfir gjöld og samanburður milli sveitarfélaga
Við undirbúning byggingarframkvæmda þarf að taka mið af ýmsum kostnaðarþáttum. Reiknivélin gefur fyrstu yfirsýn yfir gjöld sem geta fylgt uppbyggingu og getur þannig nýst við að skoða hugmyndir og móta fyrstu kostnaðaráætlanir. Hún er aðgengileg á vef Ölfus Cluster fyrir alla sem vilja kynna sér þessa þætti nánar.
Einnig er hægt að bera gjöld í Ölfusi saman við gjöld í Árborg og Hveragerði. Samanburðurinn byggir á upplýsingum úr gjaldskrám sveitarfélaganna og gefur notendum kost á að skoða hvernig gjöld geta verið mismunandi eftir staðsetningu og forsendum verkefna.
Með aðgengi að reiknivélinni vill Ölfus Cluster auðvelda þeim sem huga að uppbyggingu að afla upplýsinga á fyrstu stigum undirbúnings. Skýrari yfirsýn yfir kostnað er liður í því að styðja við upplýsta umræðu um framkvæmdir og fjárfestingu á svæðinu.
Skjáskot af reiknivélinni á vef Ölfus Cluster.
Niðurstöður til viðmiðunar
Reiknivélin hefur ekki enn hlotið formlegt samþykki eða staðfestingu á að forsendur og útreikningar séu í samræmi við gildandi gjaldskrár. Niðurstöður eru því til viðmiðunar og koma ekki í stað staðfests gjaldaútreiknings viðkomandi sveitarfélags. Áður en þær eru nýttar við ákvarðanatöku þarf að staðfesta forsendur og gjöld hjá sveitarfélaginu.