8.SEPTEMBER 2022 / KL 9:00 - 12:15 HÓTEL SELFOSS

Takið daginn frá til að ræða nýsköpun og tækifæri í íslenskri matvælaframleiðslu á ráðstefnu sem haldin verður á Hótel Selfossi þann 8. september.

Brýnt er að auka matvælaframleiðslu í heiminum verulega á næstu áratugum vegna sífellt vaxandi
íbúafjölda heimsins. Í þessu felast miklar áskoranir þar sem stór hluti af nýtanlegu gróðurlendi
heimsins er þegar notað í landbúnaðarframleiðslu. Nýtanlegir fiskistofnar eru margir komnir að
þolmörkum og vaxandi skortur er á orku og vatni til fæðuframleiðslu.

Í þessum áskorunum felast jafnframt mikil tækifæri fyrir Ísland sem ætlunin er að varpa ljósi á í
þessum viðburði sem er samstarfsverkefni Orkídeu, Landbúnaðarháskóla Íslands, Háskóla, iðnaðar
og nýsköpunarráðuneytisins, Háskólans á Bifröst, Íslandsstofu, Lax-inn fræðslumiðstöðvar, Matís,
Ráðgjafamiðstöðvar landbúnaðarins, Samtökum smáframleiðenda matvæla og Ölfus Cluster.

Skráningarhlekkur: https://forms.gle/3UZjB3ZfRGomXYT86

Aðgangur er ókeypis en skráning nauðsynleg.