Ölfus Cluster tók þátt í Lagarlífi 2026

Lagarlíf / Aqua-Ice 2026 fór fram í Hörpu dagana 29.–30. september. Ráðstefnan leiddi saman fjölbreyttan hóp innlendra og erlendra þátttakenda úr atvinnulífi, rannsóknum, menntun og stjórnsýslu, ásamt öðrum sem láta sig þróun lagareldis varða. Þar gafst tækifæri til að miðla þekkingu, ræða áskoranir og kynnast nýjum lausnum og ólíkum sjónarmiðum. Ölfus Cluster kom að ráðstefnunni í gegnum samstarf um kynningu og miðlun, auk þátttöku í faglegri dagskrá.

Eva Lind Guðmundsdóttir, verkefnastjóri Ölfus Cluster og stjórnarformaður Lagarlífs, flutti inngangsávarp ráðstefnunnar. Þar lagði hún áherslu á mikilvægi þess að leiða saman fólk, þekkingu og ólík sjónarmið. Þótt tækni og þekking í greininni þróist hratt kalli áframhaldandi uppbygging á samtal og samstarf um líffræðilegar áskoranir, sjálfbærni og tengsl við samfélagið.

Auðlindanýting og sjálfbærni í umræðunni

Nýsköpun, sjálfbærni og framtíð lagareldis voru áberandi í dagskrá ráðstefnunnar. Fjallað var um hvernig ný þekking og tæknilausnir geta stutt við ábyrga uppbyggingu greinarinnar, með áherslu á nýtingu auðlinda, heilbrigði eldisfisks og tengsl við samfélagið. Meðal viðfangsefna voru lífgaslausnir, hringrásarnýting og sjálfbær nýting grunnvatns.

Meðal erinda var kynning Elliða Vignissonar, stjórnarformanns Hydros Ölfus, á sjálfbærri nýtingu grunnvatns. Umfjöllunin tengist einu af lykilviðfangsefnum uppbyggingar í Ölfusi: að afla þekkingar á vatnsauðlindinni og vakta hana til að styðja við ábyrga nýtingu til framtíðar.

Tengsl við uppbyggingu í Ölfusi

Ölfus var jafnframt viðkomustaður í „Salmon & Lava Tour“, sem var hluti af dagskrá í tengslum við ráðstefnuna 28. september. Þar var sjónum beint að uppbyggingu landeldis, áhrifum þess á atvinnuþróun og möguleikum til hringrásarnýtingar auðlinda. Heimsóknin tengdi þannig umræðu ráðstefnunnar við verkefni og uppbyggingu á svæðinu.

Samstarf Ölfus Cluster og Lagarlífs miðar að því að efla þekkingarmiðlun og tengsl milli atvinnulífs, rannsókna og opinberra aðila. Fyrir Ölfus Cluster er ráðstefnan mikilvægur vettvangur til að kynna tækifæri í Ölfusi og sækja þekkingu sem nýtist við þróun grænna iðngarða, nýtingu hliðarstrauma og áframhaldandi uppbyggingu atvinnulífs.