Orka náttúrunnar (ON) og Thor Landeldi ehf. undirrituðu þann 24. nóvember sl. raforkusamning sem tryggir Thor Landeldi ehf. 5 MW af raforku. Thor landeldi er með í undirbúningi laxeldi í grennd við Þorlákshöfn og er áætluð heildarframleiðsla í þessum áfanga verkefnisins 5.000 tonn, en fyrsti áfangi verkefnisins er bygging seiðaeldisstöðvar. Jafnframt var undirrituð viljayfirlýsing um aukningu upp að 10 MW sem styður við frekari uppbyggingaráform Thor Landeldis.

Thor Landeldi ehf. áformar uppbyggingu á 20.000 tonna laxeldi í Þorlákshöfn og hefur tryggt sér rúmlega 20 hektara lóð við Laxabraut vestan við Þorlákshöfn. Staðsetningin er talin afar heppileg fyrir landeldi þar sem svæðið er auðugt af fersku vatni og jarðsjó sem er mikilvægt til slíkrar framleiðslu á landi. Í forsvari fyrir verkefnið eru Halldór Ragnar Gíslason, Jónatan Þórðarson og Þórður Þórðarson, en auk þeirra er sjóðurinn IS Haf fjárfestingar hluthafi í félaginu.

„Við hjá Thor landeldi erum afar ánægð með að hafa náð þessum áfanga með ON og erum spennt fyrir komandi samstarfi. Þessi samningur er félaginu mjög mikilvægur áfangi á vegferð okkar að uppbyggingu laxeldisins“ segir Halldór Ragnar Gíslason, framkvæmdastjóri Thor Landeldis ehf.

Árni Hrannar Haraldsson framkvæmdastjóri ON segir að með samningnum sé verið að nýta orkuvinnsluna frá Hellisheiðarvirkjun til uppbyggingar á svæðinu sem skapar aukin störf og tekjur í sveitarfélaginu. „Orka náttúrunnar framleiðir og selur rafmagn á ábyrgan og umhverfisvænan átt með sjálfbærni og umhyggju fyrir náttúrunni að leiðarljósi. ON er frumkvöðull í orkuskiptunum á Íslandi og framtíðarsýn Thor Landeldis fellur vel að okkar markmiðum um að starfa náið með fyrirtækjum með jákvæða sýn og umhyggju fyrir umhverfinu, sem og samfélaginu sem það starfar í.“

Verkefni Thor Landeldis er nú í umhverfismatsferli en gert er ráð fyrir að fyrstu hrogn verði móttekin í seiðaeldisstöðina haustið 2024.