ON verður bakhjarl Uppsprettu Suðurlands
ON hefur gengið til liðs við Uppsprettu Suðurlands sem bakhjarl hátíðarinnar sem fram fer dagana 6.–7. nóvember 2026.
Uppspretta Suðurlands er nýsköpunar- og atvinnulífshátíð sem leiðir saman fyrirtæki, frumkvöðla, fjárfesta og aðra sem koma að atvinnu- og nýsköpun á Suðurlandi. Ölfus Cluster er samstarfsaðili Uppsprettu og tekur þátt í undirbúningi og uppbyggingu hátíðarinnar.
Föstudaginn 6. nóvember verður fagdagur þar sem atvinnulíf, nýsköpun og tengslamyndun verða í forgrunni. Laugardaginn 7. nóvember verður hátíðin opin gestum og þar gefst tækifæri til að kynnast fjölbreyttri starfsemi, fyrirtækjum og nýsköpun á Suðurlandi.
Aðkoma fyrirtækja skiptir miklu máli við að byggja upp öflugan vettvang fyrir atvinnulíf og nýsköpun á svæðinu. ON hefur nú stigið inn sem bakhjarl Uppsprettu og Ölfus Cluster hvetur fleiri fyrirtæki í Ölfusi og víðar á Suðurlandi til að kynna sér möguleikana á að taka þátt og styðja við hátíðina.
Fyrirtæki geta komið að Uppsprettu með mismunandi hætti, meðal annars sem bakhjarlar eða með sýningaraðstöðu á hátíðinni. Með þátttöku fá fyrirtæki tækifæri til að auka sýnileika, kynna starfsemi sína og mynda tengsl við fjölbreyttan hóp þátttakenda.
Við hvetjum fyrirtæki til að kynna sér Uppsprettu og möguleikana á að verða hluti af hátíðinni.
👉 Nánari upplýsingar má finna á uppspretta.sass.is.
