Terraforming LIFE – verðmæti úr hliðarstraumum
Íbúar í Ölfusi hvattir til að taka þátt í könnun og samtali um verkefnið.
Verkefnastjórn Terraforming LIFE óskar eftir þátttöku íbúa í Ölfusi í könnun um viðhorf og þekkingu þeirra á landeldi og fyrirhuguðu lífgas- og áburðarveri. Svörin verða nýtt til að móta kynningar og umræður á opnum íbúafundi, með áherslu á þær spurningar og þau viðfangsefni sem íbúum þykja skipta máli.
Íbúafundur verður haldinn 20. janúar 2027 kl. 17:00 í ráðhúsi Ölfuss í Þorlákshöfn.
👉 Taka þátt í könnuninni
Frá hliðarstraumum til verðmæta
Terraforming LIFE er nýsköpunar- og samstarfsverkefni sem miðar að því að þróa lausnir fyrir nýtingu lífrænna hliðarstrauma frá fiskeldi og landbúnaði. Með auknu landeldi verður til meira magn fiskeldismykju og fóðurleifa sem þarf að finna farveg fyrir. Þessi hráefni, ásamt búfjármykju, innihalda verðmæt næringarefni sem hægt er að nýta aftur í stað þess að þau tapist úr hringrásinni.
Tilgangur verkefnisins er að tengja fiskeldi og landbúnað með þeim hætti að hliðarstraumar frá framleiðslu matvæla verði að hráefni fyrir nýja framleiðslu. Í fyrirhuguðu lífgas- og áburðarveri verður lífrænt hráefni brotið niður með örverum við loftfirrtar aðstæður. Við ferlið myndast lífgas sem hægt er að nýta til orkuframleiðslu. Eftir stendur næringarrík melta sem verður unnin áfram í lífrænan áburð.
Næringarefni aftur í hringrás
Þannig er stefnt að því að skila næringarefnum aftur til ræktunar og draga úr þörf fyrir innfluttan tilbúinn áburð. Verkefnið snýst því bæði um að bæta meðhöndlun lífrænna hliðarstrauma og kanna hvernig þeir geta stutt við innlendan landbúnað, orkuframleiðslu og fæðuöryggi. Með þróun tækni og aðferða við íslenskar aðstæður er markmiðið að skapa sjálfbæran farveg sem nýtist fiskeldi og landbúnaði til framtíðar.
Terraforming LIFE nýtur stuðnings LIFE-áætlunar Evrópusambandsins og er unnið af First Water, Bændasamtökum Íslands, Orkídeu, Ölfus Cluster og SMJ í Færeyjum.
Sjónarmið íbúa móta samtalið
Samtal við nærsamfélagið er mikilvægur hluti verkefnisins. Uppbygging nýrrar starfsemi kallar á aðgengilegar upplýsingar og tækifæri fyrir íbúa til að koma spurningum og sjónarmiðum sínum á framfæri. Könnuninni er ætlað að varpa ljósi á hvað íbúar þekkja til verkefnisins, hvaða væntingar þeir hafa og hvað þeir vilja fá nánari upplýsingar um.
Í könnuninni er meðal annars spurt um viðhorf til landeldis og fyrirhugaðs lífgas- og áburðarvers, þar á meðal mögulegar áhyggjur af lykt, mengun og áhrifum á nærumhverfið. Einnig er kannað hversu vel íbúar þekkja lífrænan áburð, hringrásarhagkerfið og sjálfbærni. Svörin verða nýtt til að móta kynningar og umræður á íbúafundinum, svo fjalla megi sérstaklega um þau atriði sem íbúum þykja skipta máli.
Opinn íbúafundur 20. janúar 2027
20. janúar 2027 kl. 17:00 · Ráðhús Ölfuss
Á fundinum verður verkefnið kynnt og gefinn kostur á spurningum og opnu samtali um fyrirhugaða starfsemi.
Íbúar í Ölfusi eru hvattir til að svara könnuninni með því að smella á hlekkinn eða skanna QR-kóðann og koma þannig sjónarmiðum sínum á framfæri.
Frekari upplýsingar um verkefnið og svör við algengum spurningum má finna á heimasíðu Terraforming Life.