Uppbyggingarsjóður Suðurlands

Opnað fyrir umsóknir í september

Næsta úthlutun Uppbyggingarsjóðs Suðurlands er framundan en opnað verður fyrir umsóknir 16. september 2026. Umsóknarfrestur er til 21. október kl. 14:00.

Sjóðurinn veitir styrki til verkefna á sviði atvinnuþróunar, nýsköpunar og menningar á Suðurlandi og getur því skapað fjölbreytt tækifæri fyrir fyrirtæki, frumkvöðla, félagasamtök og aðra aðila á svæðinu.

Tækifæri til að koma hugmyndum í framkvæmd

Uppbyggingarsjóður Suðurlands er hluti af Sóknaráætlun Suðurlands og er ætlað að styðja við verkefni sem efla byggðaþróun og samfélagið á svæðinu. Styrkir eru veittir til verkefna á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar annars vegar og menningar hins vegar, en hámarksstyrkur til einstakra verkefna er 2,5 milljónir króna.

Ölfus Cluster hvetur fyrirtæki, frumkvöðla, félagasamtök og aðra aðila í Ölfusi með verkefni eða hugmyndir í þróun til að kynna sér sjóðinn og þau tækifæri sem þar eru í boði.

Aðstoð við umsóknarferlið

Ölfus Cluster er ávallt til taks til að veita leiðbeiningar og aðstoð við umsóknarferlið. Aðstoðin getur meðal annars falist í samtali um verkefnahugmyndir, mati á því hvort verkefni falli að áherslum sjóðsins og yfirferð umsókna.

SASS býður jafnframt upp á gjaldfrjálsa ráðgjöf fyrir umsækjendur og því er tilvalið að nýta tímann fram að opnun sjóðsins til undirbúnings.

Opnað verður fyrir umsóknir 16. september og umsóknarfrestur er til 21. október 2026 kl. 14:00.

Nánari upplýsingar um Uppbyggingarsjóð Suðurlands, úthlutunarreglur og umsóknarferlið má finna á vef SASS.
👉https://www.sass.is/um-sass/soknaraaetlun-sudurlands/uppbyggingarsjodur-sudurlands