Verið vinnustofa styður við nám í heimabyggð
Nýtt skólaár er að hefjast og Verið vinnustofa í Þorlákshöfn býður nemendum upp á góða aðstöðu til náms, verkefnavinnu og próftöku.
Með haustinu hefst ný önn hjá fjölmörgum nemendum og þá er gott að minna á þá aðstöðu sem stendur til boða í Verið vinnustofa. Þar geta nemendur komið sér fyrir við nám og verkefnavinnu í rólegu vinnuumhverfi, hvort sem námið er stundað í fjarnámi eða með öðrum hætti.
Verið vinnustofa er rekin af Ölfus Cluster og er staðsett í Ráðhúsinu í Þorlákshöfn. Markmiðið er að skapa aðgengilega vinnuaðstöðu í nærumhverfinu sem getur nýst bæði við nám og störf. Aðstaðan er meðal annars búin skrifborðum, skjám og nettengingu auk einangraðra vinnuklefa sem henta vel fyrir fjarfundi, próftöku og verkefnavinnu sem krefst næðis.
Próftaka í Verið vinnustofa
Mikilvægur hluti af starfsemi Verið vinnustofu er aðstaða til próftöku. Samstarf er við Háskólann á Akureyri, Landbúnaðarháskóla Íslands og Háskólann á Bifröst um próftöku nemenda og einnig er hægt að kanna möguleika á próftöku fyrir nemendur annarra skóla.
Með því að bjóða upp á slíka þjónustu í nærumhverfinu geta nemendur sparað sér ferðir á námsstað vegna prófa og nýtt aðstöðuna samhliða námi yfir önnina.
Aðstaða fyrir nám og störf
Verið vinnustofa er hluti af þeirri áherslu Ölfus Cluster að skapa umhverfi sem styður við fjölbreytt tækifæri til náms og starfa í sveitarfélaginu. Auk nemenda nýtist aðstaðan fólki í fjarvinnu, einyrkjum og fyrirtækjum sem þurfa vinnuaðstöðu til lengri eða skemmri tíma.
Nánari upplýsingar um aðstöðu, aðgang og próftöku má finna á 👉 Verið vinnustofa.