Black Sand Hótel opnar dyr sínar í mars

Nýr kraftur í ferðaþjónustu á svæðinu

Í byrjun mars opnar Black Sand Hótel dyr sínar og bætist þar með glæsileg og metnaðarfull viðbót við ferðaþjónustu á svæðinu. Hótelið rís í einstakri náttúru suðurstrandarinnar þar sem svört sandfjara, víðáttan og kraftur hafsins skapa ógleymanlega umgjörð fyrir gesti.

Undirbúningur opnunar er í fullum gangi og mikil tilhlökkun ríkir meðal þeirra sem að verkefninu koma.

Óskar Vignisson, hótelstjóri Black Sand Hótels

Við erum afar spennt að opna Black Sand Hótel í byrjun mars og taka á móti fyrstu gestunum okkar. Svæðið býr yfir einstökum krafti og náttúrufegurð og við viljum skapa upplifun þar sem gæði, hlýlegt andrúmsloft og framúrskarandi þjónusta fara saman. Við hlökkum til að byggja upp öflugt teymi og verða virkur hluti af samfélaginu frá fyrsta degi,segir Óskar.

Opnunin markar ekki aðeins nýtt skref í þróun ferðaþjónustu heldur einnig mikilvæga atvinnuuppbyggingu á svæðinu. Black Sand Hótel er nú að styrkja teymið sitt fyrir komandi opnun og sumarvertíð og auglýsir eftir fólki í helstu stöður innan rekstrarins.

Við erum að bæta í allar helstu stöður, með sérstakri áherslu á þjóna og matreiðslumenn á veitingastað hótelsins. Jafnframt leitum við að öflugu fólki í fjölbreytt störf tengd rekstrinum. Við leggjum mikla áherslu á góða tengingu við nærsamfélagið og viljum byggja upp traustan úthringilista fyrir tilfallandi störf, veislur og aðra viðburði. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við mig í netfanginu [email protected],“ segir Óskar.

Lausar stöður eru meðal annars í:

👉 Veitingaþjónustu – Þjónar / Restaurant Service Team
👉 Eldhúsi – Matreiðslumaður / Chef

Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir þá sem vilja taka þátt í uppbyggingu á svæðinu og leggja sitt af mörkum til metnaðarfulls ferðaþjónustuumhverfis.

Með tilkomu Black Sand Hótels styrkjast innviðir ferðaþjónustu á svæðinu og skapast ný tækifæri til atvinnuuppbyggingar og verðmætasköpunar.