Grein um landgræðslu í Þorlákshöfn birt á Vísi

Grein um sögu og þróun landgræðslu í Þorlákshöfn hefur nú verið birt á visir.is. Í greininni er fjallað um áratugalanga baráttu við sandfok og uppblástur, árangur markvissra landgræðsluaðgerða og hvernig verkefnið Þorláksskógar byggir áfram á þeirri vegferð.

Greinin dregur upp heildstæða mynd af því hvernig sandfok mótaði byggð og landslag, hvernig beitarfriðun, sáning og uppgræðsla skiluðu árangri og hvernig nýjar áherslur, svo sem notkun lífræns áburðar og tengsl við hringrásarhagkerfi, skapa ný tækifæri til sjálfbærrar landnýtingar í Ölfusi.

Höfundar greinarinnar sitja í verkefnastjórn Þorláksskóga og byggir hún á gögnum og reynslu Lands og skógar, Sveitarfélagsins Ölfuss og samstarfsaðila.

Lesa greinina á Vísi hér: