Grunnur lagður að frekara samstarfi við Orku Náttúrunnar
Viljayfirlýsing um aukið samstarf í nýsköpun og orkutengdum rannsóknum.
Ölfus Cluster og Orka náttúrunnar (ON) hafa undirritað viljayfirlýsingu um aukið samstarf með það að markmiði að efla nýsköpun, sjálfbæra auðlindanýtingu og þróun orkulausna á svæðinu.
Með viljayfirlýsingunni er lagður grunnur að frekara og markvissara samstarfi þar sem þekking, reynsla og innviðir beggja aðila nýtast til að styðja við rannsóknir og þróunarverkefni. Sérstök áhersla verður lögð á verkefni sem tengja saman orku, matvælaframleiðslu, hringrásarhagkerfi og sjálfbæra verðmætasköpun.
„Við sjáum mikil tækifæri í því að dýpka samstarf við ON. Með sameiginlegri sýn á sjálfbæra þróun og nýsköpun getum við skapað öflugri grunn fyrir atvinnuuppbyggingu og framtíðarlausnir í Ölfusi,“ segir Páll Marvin Jónsson, framkvæmdastjóri Ölfus Cluster.
Páll Marvin Jónsson, framkvæmdarstjóri Ölfus Cluster. Eva Lind Guðmundsdóttir, verkefnastjóri Ölfus Cluster. Ingunn Gunnarsdóttir, leiðtogi nýsköpunar hjá ON. Helga Kristín Jóhannsdóttir, deildarstjóra Jarðhitagarðs ON.
Samstarfið fellur vel að hlutverki Ölfus Cluster sem þekkingar- og nýsköpunarklasa með áherslu á sjálfbæra matvælaframleiðslu og grænar lausnir. Jafnframt styður það við framtíðarsýn ON um ábyrga nýtingu náttúruauðlinda og orkuskipti.
Með þessu skrefi styrkja Ölfus Cluster og ON tengsl atvinnulífs, rannsókna og orkugeirans og skapa vettvang fyrir frekari þróun verkefna sem hafa jákvæð áhrif á samfélag og umhverfi.