Fyrstu hrognin
búin að klekjast og
ný hrognasending á leiðinni
Uppbygging landeldisstöðva í Sveitarfélaginu Ölfusi heldur áfram með öflugum hætti og enn eitt tímamóta skrefið tekið í þróun og vexti atvinnulífs á svæðinu. Fyrstu hrognin hjá Thor voru lögð inn 22. maí síðastliðinn og hafa nú klakist með mjög góðum árangri – alls um 412.000 hrogn. Næsta hrognasending, sem felur í sér 800.000 hrogn, er áætluð 18. júní.
Stefnt er að því að hefja frumfóðrun fyrsta hópsins í A-sal stöðvarinnar í lok júlí. Undirbúningur við A-sal er í fullum gangi og unnið hörðum höndum að því að klára innviði hans. Samhliða er áframeldissalurinn í byggingu, þar sem lokið er við þakið yfir stóru kerjunum til að rafvirkjar og píparar geti hafið störf.
Tæknirýmið miðar einnig vel; þar fer vatn inn í stöðina og í gegnum UV-ljós sem tryggja hreinsun þess. Unnið er að uppsetningu stórra varmaskipta og varmadæla til að tryggja rétta hitastýringu í bæði A- og B-sölum.
Til viðbótar við tæknilega og líffræðilega uppbyggingu er einnig unnið að því að efla mannauð stöðvarinnar. Viðtöl eru nú í gangi við fjölda áhugasama umsækjendur og er stefnt að því að stækka eldisstarfsemina með öflugu teymi í seiðaeldinu á næstu vikum.