Íbúafundur

fimmtudaginn 11. apríl kl. 20

Heidelberg Materials býður til íbúafundar í Versölum, Þorlákshöfn, fimmtudaginn 11. apríl næstkomandi kl 20.

Erindi fundarins kynning á fyrirhugaðri móbergsvinnslu félagsins við Þorlákshöfn. Fyrirhugað er að boðið verði til annars fundar síðar í vor þar sem endanleg drög að verkefninu verða kynnt í aðdraganda íbúakosningar sem fram fer samhliða forsetakosningum í júní.

Fundurinn verður líkt og fyrri fundir í Versölum í Þorlákshöfn og það er Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Hornsteins og talsmaður Heidelberg Materials á Íslandi, sem stýrir fundinum.