Laust starf: Tæknimaður hjá Icelandic Glacial

Spennandi starf í sjálfbærri og tæknivæddri framleiðslu

Icelandic Glacial auglýsir laust starf Tæknimanns (Technician) í Ölfusi. Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir einstakling með tæknilega þekkingu og áhuga á fjölbreyttum verkefnum í öflugu framleiðsluumhverfi.

Icelandic Glacial er íslenskt fyrirtæki sem framleiðir og selur vatn beint úr lind í Hlíðarenda í Ölfusi, sem er ein af stærstu náttúrulegu lindum heims. Vatnið er tappað beint úr lindinni í flöskur án þess að neinu sé bætt við eða tekið úr því og er þekkt fyrir hreinleika, lágt steinefnainnihald og náttúrulegt hátt pH-gildi.

Framleiðslan fer fram í nútímalegri og tæknivæddri aðstöðu í Ölfusi sem rekin er með endurnýjanlegri orku, jarðvarma og vatnsafli. Þar er lögð áhersla á gæði, öryggi og umhverfisábyrgð.

Starfið felur í sér þátttöku í daglegum rekstri og viðhaldi tæknibúnaðar ásamt því að tryggja hnökralaust framleiðsluferli. Leitað er að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt sem og í teymi.

Starfið styrkir enn frekar fjölbreytt atvinnulíf í Ölfusi og skapar tækifæri fyrir hæft starfsfólk til að starfa í alþjóðlegu og framsæknu fyrirtæki í heimabyggð.

👉 Nánari upplýsingar og umsókn má finna hér:
https://alfred.is/starf/taeknimadur-technician-7