Atvinnustefna Ölfuss á einum stað
Yfirlit yfir markmið, aðgerðir og framgang
Atvinnustefna Ölfuss 2025–2030 var samþykkt af bæjarstjórn í desember 2025. Hún markar skýra framtíðarsýn um uppbyggingu atvinnulífs og sjálfbæra þróun í sveitarfélaginu.
Nú hefur verið opnuð sérstök vefsíða þar sem nálgast má áherslur stefnunnar og fylgjast með framgangi verkefna á einum stað. Með nýju síðunni verður stefnan aðgengilegri og gagnsærri. Þar er að finna yfirlit yfir megináherslur og forgangsverkefni sem móta atvinnuþróun í Ölfusi á tímabilinu 2025–2030.
Þökkum fyrir öfluga þátttöku
Mótun atvinnustefnunnar byggði á víðtæku samráði við íbúa, fyrirtæki og hagaðila. Fjölmargir tóku þátt í vinnustofum og hagsmunaráði, sendu inn ábendingar og deildu hugmyndum um hvernig styrkja megi atvinnulíf í Ölfusi til framtíðar.
Sú þátttaka var lykilforsenda þess að stefnan endurspeglar raunverulegar þarfir, tækifæri og metnað samfélagsins. Við viljum færa öllum sem lögðu sitt af mörkum kærar þakkir fyrir mikilvægt framlag.
Lifandi stefna – áframhaldandi samtal
Atvinnustefna Ölfuss er ekki lokað skjal heldur lifandi stefna sem þróast í takt við samfélagið og breyttar aðstæður. Nú tekur við markviss innleiðing og eftirfylgni aðgerða, þar sem reglulegt samtal og samvinna við atvinnulíf og íbúa verður áfram í forgrunni.
Við hvetjum íbúa og atvinnurekendur til að kynna sér stefnuna, senda inn hugmyndir og taka virkan þátt í áframhaldandi þróun hennar. Hugmyndir, ábendingar og samstarf eru mikilvægur hluti af því að tryggja árangur til framtíðar.
Saman mótum við öflugt, fjölbreytt og sjálfbært atvinnulíf í Ölfusi.