Grænn iðngarður í Ölfus

Ölfus Cluster leitar að verkefnastjóra

Viltu taka þátt í að móta sjálfbæra framtíð Ölfuss – nýsköpun, atvinnuuppbygging og umhverfisvæn verðmætasköpun í forgrunni.

Verkefnastjóri vinnur hjá Ölfus Cluster ses. og er starfstöðin í Þorlákshöfn.

Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum einstaklingi í starf verkefnastjóra græns iðngarðs í Ölfusi í anda sjálfbærni og nýtingu vatnsauðlindarinnar.

Hvað felst í starfinu?

Þú munt vinna með fyrirtækjunum í sveitafélaginu og öðrum hagaðilum að hönnun grænna iðngarða í Ölfusi. Þú munt jafnframt vinna með hagaðilum að því að setja upp vöktun á grunnvatnsauðlindinni á svæðinu í þeim tilgangi að tryggja ábyrga nýtingu auðlindarinnar og verndun vatnshlotsins.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Stjórna hönnun og mótun græns iðngarðs í Ölfusi í samstarfi við hagaðila.
  • Viðskiptaþróun og mótun nýrra atvinnutækifæra innan svæðisins.
  • Umsjón samstarfsverkefna við rekstraraðila innan svæðisins.
  • Skipulagning og innleiðing grænna reglna og staðla fyrir iðngarðinn
  • Vinna að öflun þekkingar og rannsókna á umhverfis og samfélagsþáttum á svæðinu, s.s. varðandi vatnamál.
  • Önnur verkefni sem tengjast starfsemi atvinnuuppbyggingu innan Ölfuss.

Hverju erum við að leita að?

  • Brennandi áhugi á að taka þátt í atvinnuuppbyggingu innan sveitafélagsins Ölfuss.
  • Frumkvæði, drifkraftur og útsjónarsemi.
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum.
  • Haldgóð atvinnureynsla og nám sem nýtist í starfi, þar er reynsla af verkefnastjórnun skilyrði.
  • Þekking og reynsla af umhverfis- og skipulagsmálum er kostur.
  • Góð íslensku og enskukunnátta í ræðu og riti.

 

Hvað færð þú?

  • Tækifæri til að leiða nýsköpunarverkefni í samstarfi við opinbera aðila og fyrirtæki
  • Mikil áhrif á sjálfbæra þróun og atvinnulíf svæðisins
  • Sveigjanlegt og sjálfstætt starf í öflugu teymi
  • Tengslamyndun við innlenda og erlenda hagaðila
  • Aðkomu að stærstu fjárfestingaverkefnum á Íslandi

Annað:

  • Starfshlutfall: 100%
  • Umsóknarfrestur: 19. maí 2025

Hægt er að senda inn umsókn í gegnum ráðningavefinn Alfreð.is

Eða sendu umsókn, ferilsskrá og kynningarbréf til Páls Marvins Jónssonar á pmj@olfus.is, merkt „Verkefnastjóri Ölfuss“. Fyrir frekari upplýsingar, hringdu í 694-1006.