Rétt í þessu var kynningu á frumvarpi til laga um lagareldi að ljúka

Streymt var frá fundinum þar sem Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra kynnti nýtt frumvarp til laga um lagareldi. Fundurinn var haldinn í sal Club Vox á 1. hæð Hilton Reykjavík Nordica og hófst kl. 11.00.

Kolbeinn Árnason skrifstofustjóri matvæla fór yfir helstu breytingar að loknu samráðsferli. Tilgangur frumvarpsins er að skapa greininni ramma sem tryggir að sjálfbærni og vernd lífríkisins verði höfð að leiðarljósi og fram kom í máli Kolbeins að víðtækt samráð hafi verið haft við hagaðila til að ná settu marki.

Karl Steinar Óskarson, deildarstjóri fiskeldis hjá Matvælastofnun og Guðni Guðbergsson, sviðsstjóri hjá Hafrannsóknastofnun fóru einnig yfir aðkomu sinna stofnana að frumvarpinu.