Sterkur kynningarfundur í Ölfusi
Sameiginleg sýn, tækifæri og samtal um framtíð ferðaþjónustunnar
Kynningarfundur ferðaþjónustunnar í Ölfusi var haldinn í Ráðhúsi Ölfuss fimmtudaginn 20. nóvember og var vel sóttur af ferðaþjónustuaðilum, fyrirtækjum og samstarfsaðilum. Fundurinn markaði mikilvægt skref í sameiginlegri stefnumótun og einkenndist af öflugu samtali og mikilli framtíðarorku.
Í upphafi fundar setti Páll Marvin Jónsson, framkvæmdastjóri Ölfus Cluster, fundinn, fór yfir markmið fundarins og sagði m.a. frá vinnu við gerða Atvinnustefnu Sveitarfélagsins þar sem að áætlað er að Ferðaþjónustan verði ein af framtíðarstoðum Atvinnusköpunar í Sveitarfélaginu. 👉 Ferðaþjónustuklasi í Ölfusi
Innsýn í uppbyggingu og tækifæri
Á fundinum fluttu erindi lykilaðilar innan sveitarfélagsins og greinarinnar:
Grétar Ingi Erlendsson, formaður bæjarráðs Ölfus, dró fram þá miklu breidd og styrk sem felst í fjölmörgum ferðaþjónustufyrirtækjum í sveitarfélaginu. Hann lagði áherslu á að þau væru mörg, öflug og fjölbreytt — og að þessi breidd væri sterkur grunnur fyrir áframhaldandi uppbyggingu. Hann fór einnig yfir helstu framtíðaráform og verkefni sem liggja fyrir sveitarfélagið á sviði ferðaþjónustu. 👉 Framtíð ferðaþjónustu
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska Ferðaklasans, fjallaði um samstarfsvettvang, sameiginlega stefnumótun og hvernig ferðaþjónustan getur unnið saman í innviðum, þróun og vörusköpun.
Hallgrímur Kristinsson, frumkvöðull og þróunarstjóri hjá Icelandia, miðlaði reynslu og dró fram ný og spennandi tækifæri sem hann sér í Ölfusi—með áherslu á nýsköpun og óhefðbundnar leiðir.
Að loknu erindi Hallgríms undirrituðu þau Páll Marvin Jónsson og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir undir samstarfssamning og inngöngu Ölfus Cluster í Íslenska Ferðaklasans.
Góðar umræður – sameiginleg sýn á áskoranir og tækifæri
Að loknum erindum opnaðist fyrir virkt og opið samtal þar sem þátttakendur ræddu stöðu ferðaþjónustunnar í Ölfusi og þau viðfangsefni sem blasa við á næstu misserum. Í umræðunum komu skýrt fram bæði jákvæð tækifæri og áskoranir sem mikilvægt er að vinna áfram með.
Samhljómur var um að klasavettvangurinn gæti verið sterkt tæki til að efla samráð, byggja sameiginlega sýn og tryggja að þróun greinarinnar sé markviss og samræmd. Einnig var rætt um mikilvægi þess að Ölfus finni sína skýru stöðu og ímynd sem áfangastaður áður en tekin er endanleg ákvörðun um hvaða markaðsvettvangur eða samstarfslína henti best til framtíðar.
Þátttakendur lögðu áherslu á stór tækifæri sem felast í landfræðilegri sérstöðu sveitarfélagsins, meðal annars tengingum við Hengilssvæðið, Eldfjallaleiðina og Suðurstrandarveg, sem og möguleikum á að styrkja upplifanir og nýta náttúru svæðisins betur. Þá var einnig rætt um mikilvægi þess að styðja grasrótina — frumkvöðla og fyrirtæki sem eru þegar að skapa verðmæti á svæðinu og að byggja upp næstu skref út frá raunverulegum þörfum þeirra.
Einnig komu fram hugmyndir um einstök sóknarfæri, til dæmis að nýta almyrkva þann 12. ágúst 2026 sem sérstaka upplifun sem gæti dregið gesti að og styrkt ímynd og vöruframboð Ölfuss.
Umræðurnar einkenndust af jákvæðni, sameiginlegum vilja til samstarfs og skýrri framtíðarsýn sem sýnir að svæðið býr yfir miklum krafti og fjölbreyttum möguleikum sem vert er að byggja á.
Næstu skref – sameiginleg stefnumótun og verðmætasköpun
Á fundinum kom skýrt fram að mikill vilji er meðal ferðaþjónustuaðila og samstarfsaðila til að halda áfram sameiginlegri vegferð. Ölfus Cluster mun á næstu dögum vinna úr þeim hugmyndum og áherslum sem komu fram, styrkja samtalið enn frekar og styðja fyrirtæki í sínum verkefnum.
Fundurinn var mikilvægt skref í að móta heildstæða og metnaðarfulla framtíðarsýn fyrir ferðaþjónustu í Ölfusi – og sýndi að svæðið býr yfir krafti, frumkvæði og sterkri samheldni.