Þekkingarsetur Ölfus Cluster

Terraforming LIFE

Terraforming LIFE miðar að því að þróa nýja aðferð til að framleiða áburð og lífgas úr þeim lífræna úrgangi sem fellur til við fiskeldi á landi og úr landbúnaði. Verkefnið er samstarfsverkefni First Water, Bændasamtaka Íslands, Orkideu, Ölfus Cluster, SMJ frá Færeyjum og Blue Ocean Technology frá Noregi og hlaut styrk frá Umhverfis- og loftslagsáætlun Evrópusambandsins.

Framtíðin í landbúnaði veltur á framþróun í umhverfismálum. Með samvinnu og nýsköpun getum við tryggt sjálfbæra framtíð landbúnaðar.

Um verkefnið

Markmið Terraforming LIFE er að hanna og þróa nýja tækni og aðferðir til að skapa samþætt landbúnaðar- og fiskeldiskerfi þar sem fiskeldi, bændur og sérfræðingar í landbúnaði eru í lykilhlutverki í hringrásarhagkerfi.

Með því að framleiða áburð sem „ofurfæðu“ fyrir móður jörð mun verkefnið hafa öflug og jákvæð áhrif á fjölmörg umhverfismál.

Hvað við gerum

Blanda af seyru og búfjáráburði verður flutt með færanlegri meðhöndlunareiningu til lífáburðarverksmiðju. Blandan verður auðguð með meltiefni (digestate) úr fiski sem óhjákvæmilega fellur til við eldi, og að lokum þurrkuð til að framleiða öflugan náttúrulegan áburð og lífgas.

Verkefnið nýtir nýja vatnsendurvinnslutækni (Sideflow) sem er viðbót við fiskeldiskerfið „Flow-Through System with Reuse“ (FTS-R).

Bæði stofn- og rekstrarkostnaður (CAPEX og OPEX) verður lægri en í öðrum hátæknilegum fiskeldiskerfum, á sama tíma og magn og nýting næringarefna úr fiskseyrunni er hámarkað.

AÐ UMBREYTA SEYRU OG BÚFJÁRÁBURÐI Í UMHVERFISVÆNAR OG VERÐMÆTAR AFURÐIR

Hringrásarhagkerfi í kringum landbundið laxeldi. Frá fiskseyrum og kúm- og svínaáburði yfir í áburð og lífeldsneyti.

Smelltu hér til að fræðast meira um verkefnið á heimasíðu Terraforming!

Sterkt samstarf er lykillinn að árangri Terraforming LIFE.

Verkefnið byggir á fjölbreyttri þekkingu og reynslu leiðandi aðila úr atvinnulífi, rannsóknum og opinberri stjórnsýslu.

First Water var stofnað af völdum hópi frumkvöðla með víðtæka reynslu á sviðum landbúnaðar, mannvirkjagerðar, nýtingar jarðvarma, viðskipta og fjármála.

Fyrirtækið hefur lokið umhverfismati, hlotið samþykki yfirvalda í Ölfusi og tryggt sér land og seiðaeldisstöð sem eru nú þegar í rekstri.

Bændasamtök Íslands eru málsvari íslenskra bænda og vinna að vernd og eflingu hagsmuna landbúnaðarins.

Samtökin gegna lykilhlutverki í verkefninu með skipulagningu söfnunar búfjáráburðar, gerð samninga við bændur um afhendingu áburðar og umsjón með samskipta- og miðlunarstarfi verkefnisins.

Orkídea er samstarfsverkefni sem miðar að því að efla nýsköpun og fjárfestingar á Suðurlandi á sviði matvælaframleiðslu og líftækni.

Orkídea er í eigu Landsvirkjunar, Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Landbúnaðarháskóla Íslands og Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins.

SMJ leggur áherslu á gæðatryggða ráðgjöf og stöðuga uppbyggingu þekkingar. Fyrirtækið hefur víkkað út ráðgjafarsvið sitt og býr í dag yfir sérþekkingu á fjölmörgum sviðum, þar á meðal fiskeldi.

Á undanförnum árum hefur SMJ sérstaklega eflt ráðgjöf sína fyrir fiskeldisiðnaðinn og veitir samþætta ráðgjöf sem tengir saman líffræðilega og tæknilega sérþekkingu.

Ölfus Cluster er skipað völdum hópi einstaklinga með víðtæka reynslu úr atvinnulífi, opinberri stjórnsýslu, rannsóknum og akademísku starfi. Hópurinn deilir sameiginlegri sýn um að efla og styðja við efnahagslíf svæðisins, með hugmyndafræði græna og bláa hagkerfisins að leiðarljósi.

Samfjármagnað af Evrópusambandinu. Skoðanir og álit sem hér koma fram eru þó einungis á ábyrgð höfundar/-a og endurspegla ekki endilega afstöðu Evrópusambandsins eða CINEA. Hvorki Evrópusambandið né veitingaraðili styrksins bera ábyrgð á þeim.