Þekkingarsetur Ölfus Cluster
Hydros ehf. og Sveitarfélagið Ölfus hafa skilað sameiginlegri umsögn í samráðsgátt stjórnvalda vegna drög að frumvarpi til laga um lagareldi (stjórnarfrumvarp, 157. löggjafarþing 2025–2026). Umsögnin var lögð fram 26. janúar 2026.
Sameiginleg umsögn Sveitarfélagsins Ölfuss og Hydros ehf. við drög að frumvarpi til laga um lagareldi hefur verið lögð fram í samráðsgátt stjórnvalda. Umsögnin tekur sérstaklega til landeldis og þeirra sérstöku aðstæðna sem slíkur rekstur býr við í Ölfusi.
Í umsögninni er fagnað því að settur sé heildstæður lagarammi um fiskeldi, en jafnframt lögð áhersla á að landeldi sé frábrugðið sjókvíaeldi og að löggjöfin þurfi að taka mið af þeirri sérstöðu. Landeldi fer fram í lokuðum og tæknilega stýrðum kerfum þar sem fiskvelferð, vatnsgæði og umhverfisáhrif eru að mestu undir beinni stjórn rekstraraðila.
Bent er á mikilvægi skýrra, fyrirsjáanlegra og faglega rökstuddra reglna sem styðja við sjálfbæra uppbyggingu greinarinnar, tryggja fjárfestingaröryggi og skapa trausta umgjörð fyrir atvinnu- og byggðaþróun í sveitarfélaginu. Í umsögninni er meðal annars lögð áhersla á hlutlæg og mælanleg viðmið um fiskvelferð og vatnsgæði, að þéttleiki sé hluti af heildarmati á rekstri en ekki sjálfstætt viðmið, og að reglur um frárennsli og mótvægisaðgerðir byggi á faglegu mati og raunverulegum umhverfisáhrifum.
Einnig er fjallað um mikilvægi lengri gildistíma rekstrarleyfa eða reglubundinnar endurskoðunar þeirra, til að mæta eðli þeirra miklu og langtímabundnu fjárfestinga sem landeldi krefst. Þá er lögð áhersla á skýrar reglur um breytingar á leyfum, framlengingu þeirra og að afturköllun rekstrarleyfa verði aðeins beitt sem síðasta úrræði.
Ölfus Cluster tekur undir þau sjónarmið sem koma fram í umsögninni og telur mikilvægt að lagasetning um lagareldi styðji við sjálfbæra nýtingu auðlinda, nýsköpun og atvinnuuppbyggingu á svæðinu, í nánu samspili sveitarfélaga og atvinnulífs.
👉 Umsögnina má nálgast í samráðsgátt stjórnvalda:
Umsögn varðandi Lög um lagareldi