Framkvæmdir við höfnina

Framkvæmdir við höfnina eru í fullum gangi þessa dagana en markmið þeirra nú er að geta tekið á móti 200 m löngum skipum og snúið þeim innan hafnar. Næstu skref eru að fjölga viðlöguköntum og stækka athafnasvæði á landi.
Framkvæmdirnar eru aðkallandi þar sem að höfnin þarf að vaxa í takt við hina miklu uppbygging atvinnulífsins í Ölfusi og á Suðurlandi öllu. Á meðan að áfram heldur að gjósa á Reykjanesinu má segja að ef frá er talin Vestmannaeyjahöfn þá er  Þorlákshöfn eina útflutningshöfn strandlengjunnar, allt frá Keflavík austur að Höfn í Hornfirði. Á samatíma þrengir íbúðabyggð stöðugt að hafntengdri starfsemi á höfuðbrgarsvæðinu.  Það er því nokkuð víst að áframhaldandi uppbygging Þorlákshafnar hefur aldrei verið brýnni ef ætlunin er að tryggja frekari hagvöxt á Íslandi.