Upplýsingar
- Hafnarberg 1, 815 Þorlákshöfn
- + 354 694 1006
- info@olfuscluster.is

Thor landeldi leitar að framtíðarstarfsmönnum í seiðaeldi félagsins við Þorlákshöfn.
Félagið tekur á næstu vikum í notkun nýja og fullkomna seiðastöð að Laxabraut 35, rétt vestan við Þorlákshöfn og er leitað að starfsmönnum í fullt starf.
Vinnutími er frá 8:00 til 16:00 virka daga og til 15:00 á föstudögum. Jafnframt sinna starfsmenn bakvöktum, sem verða til að byrja með eina viku í mánuði.
Starfið felst í almennri umhirðu seiða og eftirliti, auk annarra tilfallandi starfa í seiðastöðinni.
Hæfniskröfur
Æskilegt er að starfsmenn seiðaeldisins búi í næsta nágrenni eða hafi að minnsta kosti aðsetur í nálægð við seiðastöðina á bakvaktarvikum.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Örn Jakobsson, stöðvarstjóri seiðaeldis, sigurdur.jakobsson@thorsalmon.com
Umsóknarfrestur er til og með 25. maí nk.