Stofnfundur Ölfus Cluster fór fram föstudaginn 24. september 2021. Undirbúningur fyrir stofnun á sér uppruna hjá Sveitafélaginu og hefur verið sóttur stuðningur í verkefnið frá Uppbyggingasjóð Suðurlands og til Lóunnar, nýsköpunarsjóðs á vegum Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins. Í undirbúningsstjórn voru fulltrúar frá sveitafélaginu og fyrirtækjum starfandi í Ölfus. Páll Marvin Jónsson var ráðinn til þess að vinna að stofnun félagsins ásamt því að vinna á undirbúningstímanum að verkefnum er tengjast starfseminni.
Ný stjórn Ölfus Cluster er skipuð eftirfarandi aðilum:
Stjórn Ölfus Cluster samþykkt á stofnfundi 24.sept 2021:
- Áshildur Bragadóttir, nýsköpunar- og þróunarstjóri, Lbhí,
- Berglind Rán Ólafsdóttir framkvæmdastjóri ON hf.
- Grétar Ingi Erlendsson, markaðsstjóri Black Beach Tours, formaður bæjarráðs Ölfus
- Hafsteinn Helgason, sviðsstjóri rannsókna og þróunar, Efla
- Ingólfur Snorrason framkvæmdastjóri Landeldi ehf.
Varastjórn
- Elliði Vignisson, sveitastjóri Ölfus
- Jens Garðar Helgasons, framkvæmdastjóri Laxa ehf.
Stofnun Ölfus Cluster markar ákveðin tímamót í atvinnu uppbyggingu Ölfus en mikill áhugi er á starfseminni sem endurspeglast í þeim fjölmörgu verkefnum sem hafa farið af stað á undirbúningstímanum. Alls hafa 20 aðilar samþykkt að gerast stofnaðilar en heimild er að taka inn stofnaðila fram að næsta aðalfundi sem haldinn verður síðasta lagi í maí 2022.