Yfirlit yfir áhugaverð störf sem eru laus til umsókna í Ölfuss

Spennandi framtíðarstarf hjá First Water

Ölfus Cluster kynnir spennandi starf hjá First Water, sem leitar að sérfræðingi í sjálfvirkum stjórnkerfum til að styrkja ört vaxandi tæknisvið sitt. Starfið er í boði í Kópavogi eða Þorlákshöfn. First Water er framsækið íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem vinnur að uppbyggingu sjálfbærs landeldis á laxi með nýjustu tækni. Uppbygging félagsins í Þorlákshöfn er eitt stærsta atvinnu- og innviðaverkefni svæðisins og mun skapa fjölmörg störf á komandi árum. Um starfið: Leitað er að sérfræðingi með reynslu í forritun og gangsetningu stjórnkerfa. Starfið felur í sér forritun stýrivélabúnaðar og SCADA-kerfa, skipulagningu prófana og gangsetninga, þátttöku í umbótaverkefnum og greiningu gagna. Hæfniskröfur: Menntun í rafmagns-, tækni- eða verkfræði, reynsla af stýrivélaforritun og SCADA-kerfum, auk skipulagðra og faglegra vinnubragða og sterkra umbótahugsunar.

Continue ReadingSpennandi framtíðarstarf hjá First Water

Orkuveitan

Orkuveitan og dótturfyrirtækin Orka náttúrunnar, Veitur og Carbfix eru með mikla starfsemi hjá okkur í Ölfusi. Mörg fjölbreytt sumarstörf fyrir ungmenni eru nú farin í loftið og tilvalið fyrir þau…

Continue ReadingOrkuveitan